Back to search

Bifröst University

Skyldur og refsiábyrð stjórnarmanna í hlutafélögum

Abstract

dc:description.abstract

Hlutafélagalög nr. 2/1995 kveða á um margvíslegar skyldur stjórnarmanna varðandi setu þeirra í stjórn félaga. Meginmarkmið þessarar ritgerðar var að fjalla um þessar lagaskyldur stjórnarmanna með sérstaka áherslu á þá refsiábyrgð sem stjórnarmenn þurfa að axla séu þær lagaskyldur ekki uppfylltar. Refsiákvæði hlutafélagalaga tiltaka nokkuð ítarlega hvaða skyldur er refsivert að vanrækja. Því til viðbótar eru skoðuð refsiákvæði ýmissa laga sem stjórnarmenn í hlutafélögum þurfa að þekkja og vita að refsivert er að vanrækja í rekstrinum. Til dæmis má sjá af dómum að brot á lögum um virðisaukaskatt eru oft á tíðum álitin brot á eftirlitsskyldu stjórnarmanna skv. 68. gr. hfl. auk þess sem stórfelld brot teljast einnig brot gegn almennum hegningarlögum. Breytingar laga er tengjast félagarekstri undanfarin þrjú ár bera þess merki að vilji löggjafans stendur til þess að hafa lagaumhverfi þannig háttað að það stuðli að eðlilegum og heilbrigðum viðskiptaháttum. Dómaframkvæmd sýnir einnig að stjórnarmenn geta ekki gripið til afsakana til að losna undan refsiábyrgð. Stjórnarmenn eru refsiábyrgir vegna brota í starfsemi lögaðilans vegna stöðu sinnar sem stjórnarmenn alveg óháð því hvernig stjórnarseta þeirra er tilkomin.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ása Kristín Óskarsdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9837
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9837

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ása Kristín Óskarsdóttir 1975-. Skyldur og refsiábyrð stjórnarmanna í hlutafélögum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9837