Back to search

Bifröst University

Réttarstaða lögveðsréttinda gagnvart fasteignagjöldum

Abstract

dc:description.abstract

Lögveðsréttindi eru viss tegund veðréttinda. Þau sækja heimildir sínar í sérstaka lagaheimild og eru þessi réttindi túlkuð sem forgangsréttur fram yfir aðrar veðkröfur. Því hefur verið haldið á lofti að fasteignagjöld séu lögveðsvarin gjöld til sveitarfélaga, án þess að það sé skýrt nánar. Lögveðsréttindi hafa reyndar í gegnum tíðina verið frekar óljós, þar sem ekki er gerður áskilnaður um opinbera skráningu þeirra, til réttarverndar. Auk þessa er rétthæð lögveða óháð aldri gagnvart öðrum óbeinum eignarréttindum. Höfundur hyggst gera hugtakinu lögveðsréttindi nánari skil,ásamt því að leiða út stöðu þeirra gagnvart fasteignagjöldum. Ritgerðarhöfundur beitir sömu rannsóknaraðferðum við ritun skýrslunnar og honum var tamt að gera við Háskólann á Bifröst. Með þessari aðferð voru efnistökin ákveðin og skilgreind og í heimildavinnunni voru notaðar frumheimildir, afleiddar heimildir og aðrar upplýsingar,varðandi efnið. Hér ber einnig að nefna mikilvæga leiðsögn leiðbeinanda míns, sem er vel að sér á sviði veðréttar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valgeir Már Levy 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7913
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7913

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valgeir Már Levy 1981-. Réttarstaða lögveðsréttinda gagnvart fasteignagjöldum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7913