Back to search

Bifröst University

Straumlínustjórnun í íslenskum fyrirtækjum : valkostur fyrir heilbriðgðisþjónustuna?

Abstract

dc:description.abstract

Straumlínustjórnun er leið að markmiðum sem fyrirtæki hefur sett sér til að ná árangri í starfsemi fyrirtækisins með það fyrir augum að útrýma sóun, staðla vinnubrögð, leysa úr vandmálum og koma með úrlausnir. Hin sérstaka fyrirtækjamenning og virðing fyrir fólki er mikilvæg í þessari hugmyndafræði. Innleiðing Straumlínustjórnunar er orðin útbreidd um allan heim sem leið til að ná árangri í gæðum þjónustu, auknu virði til viðskiptavina, að minnka mistök í starfi og bæta stjórnun starfseminnar. Rannsóknin kannar hvernig íslensk fyrirtæki og stjórnendur hafa nýtt sér hugmyndafræði Straumlínustjórnunar hér á landi. Reynt er að sýna fram á hvernig áhrif, reynsla og þekking sem skapast hefur á hugmyndafræði Straumlínustjórnunar hérlendis, gæti nýst í starfsemi heilbrigðisþjónustunnar. Fræðilegar rannsóknir á efninu eru ekki margar og engar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum Straumlínustjórnunar á íslenska heilbrigðisþjónustu. Rannsóknin leitar svara við því hvaða þætti og aðferðir íslenskir stjórnendur nýta sér við innleiðingu á Straumlínustjórnun og hvort þessar aðferðir geti verið valkostur fyrir heilbrigðisþjónustuna. Rannsóknarsniðið er eigindlegt með viðtölum við stjórnendur nokkurra fyrirtækja hér á landi. Þessi rannsókn sýnir það að sá árangur sem hefur skapast með innleiðingu Straumlínustjórnunar í fyrirtækjum hérlendis væri eitthvað sem gæti verið góður valkostur í stjórnun heilbrigðisþjónustu á tímum niðurskurðar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að með notkun Straumlínustjórnunar sé verið að ná fram umtalsverðum umbótum í starfsemi fyrirtækjanna, með ánægðari starfsmenn og viðskiptavini, bætt samskipti á vinnustað, betra vinnuumhverfi, hagræðingu í rekstri og meira sýnilega stjórnendur. Helstu ályktanir sem má draga af rannsókninni er að reynsla þeirra stjórnenda, hér á landi sem hafa prófað þessa aðferð, sé góð og að hægt sé að nýta sér hugmyndafræðina fyrir heilbrigðisþjónustu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Árnadóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7895
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7895

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Árnadóttir 1977-. Straumlínustjórnun í íslenskum fyrirtækjum : valkostur fyrir heilbriðgðisþjónustuna?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7895