Back to search

Bifröst University

Mengunin í Mexíkó : hverjar eru hugsanlegar leiðir til þess að draga úr mengun í Mexíkó?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um þann umhverfisvanda sem er í Mexíkó sem og Mexíkóborg. Skoðuð sú mengun sem er landsvísu og þá mengun sem er í Mexíkóborg. Fjallað verður um hvað leiðir stjórnvöld í Mexíkó geta farið til að draga úr umhverfisvandanum og hvað leiðir stjórnvöld hafa þegar farið. Einnig verður farið yfir þætti mengunnar. En þeir eru loftmengun, vatnsmengun og mengun sem stafar af heimilissorpi. Skoðað verður hver rót mengunarvandans og afhverju umhverfisskaði varð svo mikill í Mexíkó. Þær ástæður fyrir vaxandi mengun í Mexíkó voru þær að Mexíkó opnaði efnahag sinn svo að hagvöxtur fór að aukast í landinu. Hagvöxturinn var þó á kostnað náttúru Mexíkó, þar sem framleiðsla jókst og mengun varð meiri. Stjórnvöld í Mexíkó huguðu ekki að því að setja lög og reglugerðir sem gátu stuðlað að sjálfbærum efnahagsvexti, eða svo að umhverfi Mexíkó bæri ekki skaða af. Þessi þróun hafði einnig áhrif á Mexíkóborg, en mengun í henni fór að aukast til muna þegar líða tók á 20. öldina. Niðurstöður ritgerðarinnar voru í raun tvíþættar. Í fyrsta lagi hafði sú ákvörðun Mexíkanskra stjórnvalda að opna efnahag sinn til annara landa neikvæð áhrif á umhverfið. Þar sem ekki voru settar reglugerðir í takt við þann efnahagsvöxt sem reis á kosntað náttúru Mexíkó. Í öðru lagi geta ríki sem glíma svipuð umhverfisvandamál og Mexíkó, litið til þeirra leiða sem Mexíkó hefur orðið ágengt í baráttu sinni við umhverfisvánna og einnig séð hvernig skal ekki bera sig að.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Örn Karlsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7583
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7583

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Örn Karlsson 1983-. Mengunin í Mexíkó : hverjar eru hugsanlegar leiðir til þess að draga úr mengun í Mexíkó?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7583