Back to search

Bifröst University

Byggða- og uppbyggingarstefna Evrópusambandsins : tækifæri íslenskra byggða?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar er byggða- og uppbygginarstefna Evrópusambandsins. Markmið hennar er að varpa ljósi á stefnuna og meta óbeina kosti og galla hennar fyrir íslensk byggðamál. Skoðaðar eru þær séraðstæður sem Ísland getur beitt fyrir sig í aðildarviðræðum um byggðamál og líklegum samningsáherslum landsins í byggðamálum gerð skil. Leitað var til reynslu nágrannaþjóðanna Finnlands, Svíþjóðar og Írlands við mat og til rökstuðnings á rannsóknarspurningum ritgerðarinnar. Smáríkjakenningar og hugtakið svæðaauður þjóna loks mikilvægu hlutverki í túlkun á niðurstöðum og möguleikum Íslands innan byggðastefnunnar komi til aðildar landsins. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að byggða- og uppbyggingarstefna Evrópusambandsins á erindi við Ísland. Niðurstöður benda til þess að kostir byggðastefnunnar leynist fyrst og síðast í þeirri nálgun og þeim lærdómi sem hún veitir svæðum í Evrópu. Ljóst þykir að héruð og sveitarstjórnir öðlast aukið hlutverk og svigrúm til sinna athafna með þátttöku í verkefnum styrktum af uppbyggingarsjóðum sambandsins. Í ljósi þess ástands sem ríkir í byggðamálum á Íslands og þeirrar sérstöðu sem landið mögulega nyti við upptöku byggðastefnu Evrópusambandsins sýnir ritgerðin að kostirnir yrðu fleiri en gallar hennar. Með hliðsjón af þeim smáríkjakenningum sem talað er um í ritgerðinni má gera ráð fyrir því að Ísland forgangsraði hagsmunum sínum í Evrópusambandinu. Byggðamál yrðu framarlega í forgangsröð landsins ef möguleg sérstaða landsins fæst viðurkennd í aðildarsamningi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tryggvi Haraldsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7008
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7008

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tryggvi Haraldsson 1981-. Byggða- og uppbyggingarstefna Evrópusambandsins : tækifæri íslenskra byggða?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/7008