Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er leitast við að gera skil helstu réttareglum sem viðkoma forgangskröfum við gjaldþrotaskipti. Til að ná heildarmynd af viðfangsefninu er umfjöllunin ekki eingöngu bundin við forgangskröfurnar sem slíkar heldur fjallað um helstu reglur sem nauðsynlegt er að kunna skil á svo hægt sé að ná fram fullnustu forgangskröfu. Má því segja að umfjöllunin hefjist á þeim tímapunkti sem krafa fellur í gjalddaga við uppkvaðningu úrskurðar um að bú skuli tekið til gjaldþrotaskipta, og ljúki á þeim tímapunkti þegar kröfurnar fást greiddar með úthlutun skiptastjóra á eignum þrotabúsins. Nokkuð ítarlega er fjallað um rétthæð krafna við gjaldþrotaskipti og þá sérstaklega flokk forgangskrafna. Þar sem forgangskröfur eru oft grundvallaðar á kröfum vegna vinnu fyrir þrotamann er helstu reglum vinnuréttarins gerð skil svo sem ráðningarsamband aðila og reglur sem gilda við uppsögn starfsmanns.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bjarni Hólmar Einarsson 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6683
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6683