Back to search

Bifröst University

Starfslok ríkisstarfsmanna : samanburður á réttarstöðu embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Abstract

dc:description.abstract

Réttarstaða ríkisstarfsmanna er nokkuð frábrugðin réttarstöðu starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Þeir njóta að nokkru leyti annarra réttinda og bera aðrar skyldur, um sumt gilda aðrar reglur og skyldur. Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 gilda um starfslok ríkisstarfsmanna. Í lögunum er greint á milli embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins, almennra starfsmanna. Mismunandi reglur eiga við um embættismenn og almenna starfsmenn. Þá eru ótaldir starfsmenn sem ráðnir voru fyrir gildistöku laganna en um starfslok þeirra gilda sömu reglur og um starfslok embættismanna. Embættismenn eru skipaðir eða settir í embætti og starfssambandi þeirra lýkur með því að þeim er veitt lausn frá störfum. Almennir starfsmenn gera yfirleitt ráðningarsamning með gagnkvæmum uppsagnarfresti. Ákvörðun um frávikningu úr embætti eða almennu starfi hjá ríkinu er stjórnvaldsákvörðun og um hana verður að fara eftir reglum stjórnsýsluréttar. Stjórnsýslulög nr. 37/1993 eru því veigamikil réttarheimild í þessu sambandi, sem og óskráðar reglur stjórnsýsluréttar. Það var ákvörðun höfundar að skoða að hvaða leyti reglur um starfslok eru frábrugðnar á milli embættismanna annars vegar og almennra ríkisstarfsmanna hins vegar. Auk þess var litið til þýðingar reglna stjórnsýslulaga í þessu sambandi. Fjallað er um starfsmannalög og stjórnsýslulög, tilurð þeirra og tilgang ákvæðanna. Skoðaðir voru fjölmargir dómar Hæstaréttar og héraðsdómstóla auk álita umboðsmanns Alþingis og önnur lögskýringargögn. Ég tel að því markmiði sem núgildandi starfsmannalögum var ætlað að ná, að færa réttarstöðu almennra ríkisstarfsmanna nær réttarstöðu starfsmanna á almennum vinnumarkaði, hafi ekki verið náð heldur sé réttarstaða almennra ríkisstarfsmanna frekar að færast nær réttarstöðu embættismanna. Skráðar og óskráðar reglur stjórnsýsluréttarins veita starfsmönnum ríkisins mikla vernd, hvort sem um ræðir embættismenn eða almenna starfsmenn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Rós Magnadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6644
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6644

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Rós Magnadóttir 1979-. Starfslok ríkisstarfsmanna : samanburður á réttarstöðu embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6644