Back to search

Bifröst University

Mælingar á mannauði : virði og áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Mannauður hvers fyrirtækis er líklega einhver dýrasta og vandmeðfarnasta auðlind sem það ræður yfir á hverjum tíma. Samsetning hópsins og hæfni hvers starfsmanns breytist í tímans rás og nýir starfsmenn bæta við þekkingu og hæfni sem áður var ekki til í fyrirtækinu. Heildarmat á því hver hæfni og þekking starfsmannahópsins er hverju sinni er oft óljóst enda margir þættir sem taka þarf tillit til við slíkt mat. Tilgangur rannsóknarinn var að skoða hvaða aðgerðir í mannauðsmálum hafa áhrif á fjárhagslega niðurstöðu fyrirtækja. Sput er hvort að þessar aðferðir geti gefið upplýsingar sem nýtast megi til að reikna út virði mannauðs. Tvær aðferðir voru skoðaðar. Annars vegar var skoðuð bandarísk rannsókn sem sýnir fjárhagslegan ávinning af mannauðsaðgerðum og þætti hennar bornir saman við randæmi. Hins vegar voru settar fram reikniaðferðir sem lýsa sambandi talna úr rekstrarreikningi og fjölda stöðugilda eða starfsmanna. Þeim var einnig beitt í raundæminu til prófunar. Niðurstaða rannsóknarinnar leiddi í ljós að þær aðferðir sem skoðaðar voru gefa gagnlegar upplýsingar sem nýta má sem innlegg við frekari mælingar. Virði mannauðs verður ekki fundið með þessum aðferðum sem hér er lýst einum saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hanna María Jónsdóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6201
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6201

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hanna María Jónsdóttir 1969-. Mælingar á mannauði : virði og áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækja. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6201