Bifröst University
Erfðagjörningar : arfleiðsluheimild, arfleiðsluhæfi, vottun, ógilding, misneying : VI kafli erfðalaga nr. 8/1962
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar lokaritgerðar er að rannsaka hvernig staðið er að gerð erfðaskráa. Höfundur ásetti sér að rannsaka á sem fræðilegastan hátt VI. kafla erfðalaga nr. 8/1962, sem fjallar um arfleiðsluhæfi, en á þeim kafla byggist lokaverkefni þetta. Þá skoðaði höfundur sérstaklega þá dóma sem fallið hafa á sviði erfðaréttar, með sérstöku tilliti til arfleiðsluhæfi, vottunar og hugsanlega misneytingu í þeim efnum. Meginumfjöllun ritgerðar þessarar var að skoða hverjar meginreglur erfðalaga eru til andlegs heilbrigðis, fötlunar, geðsjúkdóma, ellihrörnunar og annarra andlegra hugsanlegra annmarka þeirra sem erfðaskrá gera, sem óneitanlega er þáttur til könnunar á því hvort viðkomandi er arfleiðsluhæfur. Höfundur kannaði hvernig lagaákvæðin hafa verið túlkuð á gildi erfðaskráa, þegar meta átti hæfi einstaklinga til erfðagjörninga og þá sem votta að viðkomandi sé hæfur til löggerninga sem þessa. Við rannsókn þessa var stuðst við dóma sem fallið hafa í málum þar sem erfðaskrár hafa verið vefengdar og hæfi arfleiðanda dregið í efa. Dómar þeir sem sérstaklega voru kannaðir og nýttir í lokaverkefni þessu spönnuðu 50 ára tímabil eða frá árinu 1959 – 2009. Við vinnslu ritgerðar þessarar var sérstaklega horft til þeirra dóma þar sem gildi erfðaskrár er dregið í efa, bæði eftir lát arfláta sem og þeirra mála sem fallið hafa í lifanda lífi arfláta og komist í tíma upp um hugsanlega misneytingu gjörningsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rannveig Margrét Stefánsdóttir 1955-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6087
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6087