Back to search

Bifröst University

Meginreglan um hraða málsmeðferð í sakamálum

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er meginreglan um hraða málsmeðferð í sakamálum. Ákvæðið um hraða málsmeðferð hefur verið í lögum um meðferð opinberra mála allar götur frá árinu 1951. Nú er ákvæðið að finna í lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008. Sambærilegt ákvæði er að finna í Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sbr. lög nr. 33/1944 með síðari breytingum og Mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 62/1994. Er málshraðareglan ein af grundvallarreglum réttarfars sem víða kemur fram í lögum eins og hér er nefnt. Var því áhugavert að skoða hversu virkt ákvæðið er, út frá dómaframkvæmd. Var hugtakið mannréttindi og uppruni mannréttindakenninga skoðað og aðdragandi þess að Mannréttindasáttmáli Evrópu var lögleiddur hér á landi. Fjallað er sérstaklega um dóma Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem ákvæðið um að hraða skuli meðferð mála er tekið fyrir. Einnig voru skoðaðir dómar Hæstaréttar Íslands þar sem sama ákvæði er skoðað. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvaða áhrif það hefur þegar reglan um hraða málsmeðferð hefur ekki verið virt einkum hvort það hafi áhrif á ákvörðun refsingar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldóra Aðalsteinsdóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6056
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6056

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldóra Aðalsteinsdóttir 1972-. Meginreglan um hraða málsmeðferð í sakamálum. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6056