Abstract
dc:description.abstractUndanfarin ár hefur þróun stafrænnar tækni verið hröð og má segja að áskorun stjórnenda og starfsfólks sé afar mikil til þess að mæta þeirri hæfni og þekkingu sem krafist er frá ytra umhverfi tækniþróunar. Einnig er mikil óvissa í ytra umhverfi sem þörf er á að greina og meta eftir því hvaða afleiðingar hún hefur á fyrirtækið. Með þessari stöðugu þróun er áhugavert að skoða nánar hvaða aðferðir breytingastjórnun hefur sem fræði til þess að leiðbeina stjórnendum á krefjandi tímum. Ritgerðin fjallar um aðferðir og kenningar innan fræði breytingastjórnunar sem leiðbeina stjórnendum og starfsfólki í gegnum breytingaferli. Einnig fjallar hún um upplifun starfsmanna og hvaða þættir hafa áhrif á mótstöðu starfsmanna í breytingaferlinu. Markmiðið er að kanna hvað það er sem að veldur mótstöðu starfsfólks við breytingum vegna ytri áhrifa tæknibreytinga og hvaða aðferðir henta til þess að leiða breytingar á árangursríkan hátt á hröðum og síbreytilegum tímum. Ritgerðin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem hálf-opin viðtöl voru tekin við 6 sérfræðinga, ráðgjafa og stjórnendur sem höfðu víðtæka reynslu af innleiðingu breytinga á meðal fyrirtækja. Niðurstöður þeirra voru borin saman við aðferðafræði og kenningar breytingastjórnunar með það að sjónarmiði að skoða hvaða aðferðir hentuðu vel til að minnka mótstöðu í breytingaferli. Helstu niðurstöður sýndu að mótstaða felst ekki beint í tækniframförum sjálfum heldur því hvernig breytingar eru innleiddar, undirbúnar, kynntar og framkvæmdar. Þannig kom fram að einn helsti orsakavaldur mótstöðu er skortur á upplýsingum og undirbúningi breytinganna. En það sem dró úr mótstöðu var skýr upplýsingagjöf, þjálfun og þáttaka starfsfólks. Hlutverk stjórnenda spilaði þar stórt hlutverk með því að veita góðan stuðning, vera sýnileg og búa yfir skilningi fyrir starfi starfsfólks í breytingaferlinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ólafía Friðbjörnsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53829
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53829