Back to search

Bifröst University

Hvernig á ég að? Hvernig afla einstaklingar sér upplýsinga um hagnýt málefni daglegs lífs og hvernig birtist sú upplýsingaleit í raun

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvernig einstaklingar afla sér upplýsinga um hagnýt atriði daglegs lífs, ásamt því að skoða hvort rými sé fyrir miðlæga upplýsingaveitu í formi heimasíðu eða hlaðvarps. Alls tóku 228 manns þátt í könnuninni. Megindleg rannsóknaraðferð var valin til að skoða hvernig upplýsingaleit birtist hjá einstaklingum. Búin var til spurningakönnun í Google forms og henni dreift á Facebook, Instagram og tölvupósti. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að Google/eða aðrar leitar vélar voru mest notaðar í öllum aldurshópum, en fjölskylda, vinir, samfélagsmiðlar og aðrar leiðir eru einnig notaðar til upplýsingaöflunar. Niðurstöðurnar sýna einnig að skýrar og skiljanlegar upplýsingar skipta máli þegar upplýsingaleit er hafin og að óskýrar eða misvísandi upplýsingar, sem valda jafnvel ruglingi, geti haft þau áhrif að ákvarðanataka frestast eða að einstaklingur hætti alveg við að taka ákvörðun. Niðurstöður sýna ekki mikinn mun á milli aldurshópa en samt sem áður má sjá ákveðin mynstur koma fram. Niðurstöður benda ekki með afgerandi hætti til þess að mikil þörf sé fyrir miðlæga lausn í formi heimasíðu eða hlaðvarps , en gefa þó til kynna að slík lausn gæti verið góð svo lengi sem upplýsingarnar eru settar fram á skýran, aðgengilegan og hagkvæman hátt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ása Laufey Sigurðardóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53827
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53827

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ása Laufey Sigurðardóttir 1984-. Hvernig á ég að? Hvernig afla einstaklingar sér upplýsinga um hagnýt málefni daglegs lífs og hvernig birtist sú upplýsingaleit í raun. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53827