Abstract
dc:description.abstractÍ þessari meistararitgerð í menningarstjórnun er kannaður sá möguleiki að Álafosskvos í Mosfellsbæ verði menningarþorp og miðstöð fyrir listamannabúsetu. Markmið rannsóknarinnar er að leggja fram fræðilega og hagnýta umgjörð fyrir sjálfbæra þróun svæðisins, þar sem menningararfleifð, listsköpun og samfélagsþátttaka eru samþættuð. Rannsóknin byggir á eigindlegum aðferðum þar sem beitt er heimildarýni á fræðilegar kenningar um menningarstjórnun, sjálfbærni og staðbundna þróun, auk greiningar á dæmisögum af sambærilegum verkefnum. Einnig er núverandi staða Álafosskvosar greind með tilliti til sögu, starfsemi og skipulagsmála. Helstu niðurstöður sýna að Álafosskvos býr yfir einstökum tækifærum til að verða að lifandi menningarmiðstöð með ríka iðnaðarsögu og sterka stöðu í menningarlífi Mosfellsbæjar. Ritgerðin er innlegg í fræðasvið menningarstjórnunar þar sem veitt eru hagnýt dæmi um það hvernig megi endurlífga söguleg iðnaðarsvæði og umbreyta þeim í sjálfbær menningarlandslög. Í ritgerðinni er lögð fram heildræn nálgun, sem tengir saman fræði og framkvæmd, og getur hún nýst sem fyrirmynd fyrir svipuð verkefni á Íslandi. Lykilorð: Menningarstjórnun, Álafosskvos, listamannabúseta, menningararfleifð, sjálfbær þróun, staðbundin þróun, skapandi greinar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóel Sigurðsson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53816
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53816