Bifröst University
Landhelgisgæsla Íslands og þjóðaröryggi: Á mörkum löggæslu og varnartengdra verkefna
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um hlutverk Landhelgisgæslu Íslands innan ramma þjóðaröryggis, með áherslu á hvernig stofnunin tengir saman hefðbundin löggæsluverkefni, viðbúnað og varnartengd verkefni. Markmið rannsóknarinnar er að greina lagaumgjörð, valdheimildir og stjórnsýslulega stöðu Landhelgisgæslunnar, auk þess að kanna hvernig samstarf við innlenda og erlenda aðila styður við þjóðaröryggismarkmið Íslands. Jafnframt er gerður samanburður við norsku strandgæsluna, Kystvakten, til að varpa ljósi á mun á stjórnskipan, ábyrgðarkeðjum og verkaskiptingu á mörkum löggæslu og varnartengds stuðnings. Rannsóknin byggir á eigindlegri samanburðarnálgun þar sem íslenska og norska fyrirkomulagið eru greind með sama greiningarramma. Gögnin samanstanda fyrst og fremst af skjalagreiningu á lögum, reglugerðum, stefnumótandi skjölum og opinberum skýrslum, auk tveggja hálfopinna viðtala við lykilviðmælendur innan Landhelgisgæslu Íslands. Þar sem ekki reyndist unnt að taka viðtöl við fulltrúa utanríkisráðuneytisins eða norsku strandgæslunnar byggir norska samanburðareiningin alfarið á opinberum heimildum. Samanburðurinn beinist því fyrst og fremst að lagaumgjörð, ábyrgðarkeðjum og stjórnsýslulegum ferlum fremur en tveimur jafnstórum viðtalssöfnum. Niðurstöður benda til þess að skýrar lagaheimildir, formfest samstarf og rekjanlegt upplýsingaflæði séu lykilforsendur þess að takast á við grá svæði milli löggæslu og varnartengds stuðnings. Norska tilvikið sýnir hvernig skýrari umboð og samhæfing geta styrkt ábyrgð og samstarf. Ritgerðin veitir þannig hagnýta innsýn sem getur nýst við endurskoðun og þróun hlutverks Landhelgisgæslu Íslands í öryggis- og varnarmálum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Viggó Matthías Sigurðsson 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53810
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53810