Abstract
dc:description.abstractKveikjan að þessari ritgerð er til komin vegna starfa minna innan tollgæslunnar um langt skeið. Í því ljósi er fróðlegt að skoða stjórnsýslu tollamála árin 1985-1993 og þau mál er sýna ýmsa vankanta á opinberri stjórnsýslu málaflokksins. Ritgerðin er eigindleg og byggð á þeim fjölmörgu gögnum er varða umfjöllunarefnið. Í störfum mínum hefur allt laga- og starfsumhverfi gjörbreyst með nýjum og breyttum áherslum stjórnvalda, nýtt umhverfi inn- og útflutnings, tækninýjunga auk fjölmargra annarra þátta. Verksvið tollgæslunnar er á hverjum tíma fjölþætt og ber ávallt merki þjóðfélagsins á hverjum tíma. Áhugavert er að skoða þá opinberu stjórnsýslu sem iðkuð hefur verið í tollamálum. Í ritgerðinni er fjallað um tímabilið 1985-1993 sem var tími margvíslegra breytinga innan tollframkvæmdar í landinu. Litið var til rannsóknarspurningarinnar ,,Ómarkviss stjórnsýsla tollamála - undanfari breytinga“. Litið er til ágreinings milli ráðherra um tollframkvæmd, þrískipting framkvæmdar sama málefnis milli þriggja ráðuneyta í 26 tollumdæmum landsins er stuðlaði að ómarkvissri stjórnsýslu auk mikils núnings æðstu stjórnenda stofnanna í kjölfar setningu nýrra tollalaga 1987.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðbjörn Ármannsson 1963-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53792
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53792