Back to search

Bifröst University

Sameining sveitarfélaga - Áhrif og afleiðingar á byggðabrag

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um sameiningar sveitarfélaga á Íslandi með áherslu á félagsleg áhrif þeirra fremur en eingöngu efnahagslega þætti. Á síðustu áratugum hafa stjórnvöld markvisst unnið að sameiningum, meðal annars vegna fólksfækkunar í dreifbýli og aukinna krafna um þjónustu. Lagarammi hefur þróast frá 1961 og hefur innihaldið bæði þvingaðar og valkvæðar sameiningar. Flutningur grunnskólans til sveitarfélaga árið 1996 var mikilvægur hvati, þar sem hann kallaði á sterkari, faglegri og hagkvæmari stjórnsýslu. Þrátt fyrir að áhersla hafi verið á rekstur og þjónustu hefur minna verið fjallað um sameiningu samfélaga og áhrif á upplifun íbúa af sameiningunum. Rannsóknin leitast við að svara spurningunni um hvernig lýðræðislegt fyrirkomulag og stofnanauppbygging mótar byggðabrag í sameinuðum sveitarfélögum. Byggðabragur vísar hér til ánægju íbúa, trausts til sveitarfélagsins og vilja til áframhaldandi búsetu. Kenningar um rökræðulýðræði, sérstaklega hugmyndir Habermas, eru lagðar til grundvallar og lögð áhersla á mikilvægi virks og góðs samráðs íbúa og áhrif þess á byggðabrag. Aðferðafræðin byggir á tilfellarannsókn á sameiningum í Skagafirði og Múlaþingi, með samanburði við önnur sveitarfélög eftir þörfum. Greind eru gögn á borð við sameiningarsáttmála, opinberar skýrslur og viðtöl við einstaklinga með reynslu af sameiningum. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig staðið var að samráði og hvernig tekist hefur að takast á við samfélagslegar áskoranir. Niðurstöður eru helstar að það skiptir máli hvernig stjórnskipulag og stofnana uppbygging er reist í upphafi, samráðsferlar séu til staðar og valddreifing og skýrir ferlar um hvernig íbúar geti komið athugasemdum til skila og málum á dagskrá. Það er margt sem bendir til að heppilegt sé að völd séu eftir því sem mögulegt er sem næst íbúunum til þess að byggðabragur verði sem bestur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnsteinn Björnsson 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53783
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53783

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnsteinn Björnsson 1967-. Sameining sveitarfélaga - Áhrif og afleiðingar á byggðabrag. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53783