Back to search

Bifröst University

Eru tækifæri hjá Þjóðminjasafninu í menningartengdum ferðamannaiðnaði?

Abstract

dc:description.abstract

Árið 2024 komu um 100.000 ferðamenn við hjá LAVA Center á Hvolsvelli. Sama ár komu um 3500 ferðamenn á Keldur á Rangárvöllum sem er aðeins í 15 km fjarlægð frá LAVA. Á Keldum er m.a. elsti torfbær landsins, einn af fáum uppistandandi torfbæjum landsins með gamla skála laginu, sem er ekki endurbygging á löngu föllnum víkingaskálum. Búið var í húsinu til 1946 og er á Keldum að mörgu leyti minnisvarði um búsetuhætti sem stundaðir voru hér á landi um aldir. En hvers vegna er þessi mikli munur á gestafjölda á annars vegar húsnæði sem verið er að kanna hvort falli undir UNESCO friðun og hins vegar sýningu í nýlega smíðuðu húsi með nútímavæddri gagnvirkri sýningu tengdri eldgosum? Viðfangsefni meistaraverkefnisins er að kanna með hvaða hætti friðaðar húseignir Þjóðminjasafnsins nýtast til sýningar á menningararfi þjóðarinnar. Hvernig sá rekstur stendur í samanburði við aðra menningartengda afþreyingu. Leitast verður við að kanna mun á gestakomu milli safna í umsjón Þjóðminjasafnsins á hverju landsvæði fyrir sig í samanburði við aðra afþreyingu á svæðinu. Hvað er það sem er vel sótt og hvað ekki? Höfundur vonast til að með þessari rannsókn verði hægt að draga fram með samanburði á nokkrum rekstrarformum um landið, hvernig nýtingu er í dag háttað á friðuðum húseignum í umsjón Þjóðminjasafnsins. Höfundur vonast til að kanna hvað það er í rekstri húsasafna í umsjón Þjóðminjasafnsins sem gengur vel og hvort að hægt sé að fara svipaðar leiðir hjá öðrum söfnum. Um leið eru þær leiðir sem aðrir aðilar í menningartengdum ferðamannaiðnaði fara í sínum rekstri og þær bornar saman við húsasöfn í umsjón Þjóðminjasafnsins. Að síðustu er svo skoðað hvort það er eitthvað í öðrum rekstrarformum sem hægt er að nýta í rekstri húsasafna í umsjón Þjóðminjasafnsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valgeir Jens Guðmundsson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52154
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52154

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valgeir Jens Guðmundsson 1976-. Eru tækifæri hjá Þjóðminjasafninu í menningartengdum ferðamannaiðnaði?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52154