Back to search

Bifröst University

Hvernig eru samsæriskenningar nýttar til að grafa undan trúverðugleika lýðræðis?

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn skoðar notkun samsæriskenninga sem tól til að grafa undan trausti almennings á lýðræðislegum stofnunum, með auka áherslu á mögulegri upprisu popúlisma á Íslandi. Skoðuð voru sagnfræðileg og samtímaleg dæmi um hvernig einræðisstjórnir og stjórnmálaleiðtogar nýta sér samsæriskenningar til að grafa undan mótherjum sínum og hrífa um leið almenning með sér. Rannsóknin byggist á starfsrannsóknum frá Bandaríkjunum, og greinir stjórnmálastefnu Donalds Trumps. Rannsóknin nýtir sér þriggja þrepa mælskufræðilíkan til að meta tilvist popúlískrar orðræðu á Íslandi, með áherslu á aðgerðir og umræðu formanna og flokksmanna Miðflokksins. Niðurstöður benda til að veruleg hætta stafi af notkun samsæriskenninga sem pólitísks vopns við lýðræðislegt stjórnarfar. Þær veikja traust til lýðræðislegra stofnana og starfssemi þeirra. Rannsóknin sýnir fram á mikilvægi fjölmiðlalæsis og gagnrýninnar hugsunar þegar kemur að því að berjast við dreifingu á falsfréttum og skaðlegum samsæriskenningum. Í lokin leggur rannsóknin áherslu á nauðsyn þess að taka upplýsta og gagnrýna þátttöku í stjórnmálum til að vernda heilindi lýðræðislegra ferla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Kristinn Elíasson 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52152
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52152

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Kristinn Elíasson 2001-. Hvernig eru samsæriskenningar nýttar til að grafa undan trúverðugleika lýðræðis?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52152