Back to search

Bifröst University

Aðferðir í verkefnastjórnun. Rýnt í vinsældir aðferða og viðhorf verkefnastjóra á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Aðferðir í verkefnastjórnun eru notaðar til hagnýtingar í verkefnum. Hvort sem stuðst er við almennar aðferðir, verkfæri, myndræna framsetningu eða hugbúnaðarlausnir eru aðferðir notaðar til að auðvelda störf verkefnastjóra. Góður árangur í nútíma samkeppnisumhverfi er háður skilvirkri beitingu aðferða, til að auka nákvæmni, lágmarka áhættu og tryggja að verkefni séu vel framkvæmd. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvaða aðferðir verkefnastjórar á Íslandi nota og kanna viðhorf þeirra til notkunar þeirra. Rannsóknin byggir á bæði megindlegum- og eigindlegum rannsóknaraðferðum, með viðeigandi tölfræðigreiningu og stuðst var við niðurstöður rannsóknar Tereso o.fl. (2019), Project Management Practices in Private Organizations, til að greina vinsældir aðferða hér á landi. Niðurstöður leiða í ljós að helstu aðferðir sem notaðar eru á Íslandi eru verkáætlun, skilgreining á umfangi verkefnis og stöðufundur. Verkefnastjórar úr einkageiranum nota þessu til viðbótar þarfagreiningu einna mest og hið opinbera notar verkþáttalista. Lítill samhljómur er á milli einkageirans hér á landi, í samanburði við Tereso o.fl., þrátt fyrir að stöðufundur sé í báðum rannsóknum þriðja mest notaða aðferðin. Niðurstöður Tereso o.fl. skila ræsfundi sem mest notuðu aðferðinni og verkþáttalista þar næst. Þá sýna niðurstöður jafnframt jákvætt viðhorf starfandi verkefnastjóra til aðferða almennt. Þátttakendur rannsóknar telja að aðferðir auðveldi störf þeirra, stuðli að meiri skilvirkni og hafi jákvæð áhrif á árangur verkefna. Þátttakendur úr einkageiranum sýna meiri trú á ávinningi aðferða, nota þær oftar og búa almennt yfir meiri þekkingu. Vottaðir verkefnastjórar beita aðferðum oftar, treysta betur á gagnsemi þeirra og fá meiri stuðning frá vinnuveitendum til beitingar aðferða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafþór Atli Rúnarsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52142
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52142

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafþór Atli Rúnarsson 1983-. Aðferðir í verkefnastjórnun. Rýnt í vinsældir aðferða og viðhorf verkefnastjóra á Íslandi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52142