Back to search

Bifröst University

Haldsréttur

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að rannsaka úr hvaða jarðvegi haldsréttur er sprottinn, hvenær hann hafi komið fram og hugleiða hvernig innleiðingu hans gæti hafa verið háttað á Íslandi. Einnig að kanna hugtök honum skyld úr Rómarrétti. Rannsóknin byggir á hefðbundinni lögfræðilegri aðferðarfræði. Leitast verður við að gefa lýsingu á þeim réttarreglum sem eru í gildi að íslenskum lögum og eiga við haldsrétt, svo sem í settum lögum. Þá verður sérstaklega hugað að dómaframkvæmd þar sem haldsréttur kemur við sögu. Lítið hefur verið fjallað sérstaklega um haldsrétt í fræðiskrifum hérlendis. Oftast er hans getið í samhengi við aðrar réttarheimildir í fræðibókum, en til staðar er töluvert af dómafordæmum. Því verður mjög litið til dómaframkvæmdar er varðar haldsrétt og rannsakað hvað út úr henni megi lesa, með því markmiði að skýra betur haldsrétt. Þá verður lögð sérstök áhersla á að líta til Rómaréttar, hugtökin „ fiducia,“ „pignus,“ og „hypothea“, verða skoðuð, og sú „þróun“ sem virðist hafa átt sér stað. Með þessu er ætlunin að reyna að skilja úr hvaða jarðvegi haldsréttur er sprottinn, og hvaða þörf var til staðar í samfélaginu sem kallaði á tilkomu hans. Leitast verður við að setja upptöku haldsréttar í samhengi við stofnun Alþingis hvernig lög voru almennt tekin upp í íslenskan rétt, og hvernig var staðið að varðveislu þeirra. Þá verður farið nokkuð í skilgreiningar á haldsrétti og skoðuð staða hans innan lögfræðinnar. Einnig verður farið yfir flokkun haldsréttar, þ.e. lögbundinn og samningsbundinn haldsrétt. Síðan verður fjallað um haldsrétt sem er grundvallaður á venju eða eðli máls, og að því loknu tekin fyrir helstu skilyrði haldsréttar. Að síðustu er vikið að brottfalli eða lokum haldsréttar, farið yfir nokkra áhugaverða dóma og helstu niðurstöður reifaðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Knútur Arnar Óskarsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52141
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52141

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Knútur Arnar Óskarsson 1969-. Haldsréttur. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52141