Bifröst University
Förðunarvörur á samfélagsmiðlum : netkönnun um sýn neytenda á auglýsingar um förðunarvörur á samfélagsmiðlum
Abstract
dc:description.abstractFörðunarvörur velta árlega gríðarlegum fjármunum meðal annars í markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Markmið þessarar rannsóknar var að greina hvers konar auglýsingar á samfélagsmiðlum, sem auglýsa förðunarvörur, eru líklegar til að leiða til kaupa á förðunarvörum. Netkönnun var birt á þremur samfélagsmiðlum með 19 spurningum sem var svarað af 234 einstaklingum á Íslandi, aðallega ungum konum, eina viku í október 2025. Niðurstöður benda til að svarendur noti förðunarvörur daglega og aðallega samfélagsmiðlana Instagram og TikTok þar sjá þeir auglýsingar um förðunarvörur sem birtast þeim á síðum áhrifavalda eða sem kostaðar auglýsingar. Fram komu skýrar vísbendingar um að umsögn áhrifavalda og sannfærandi auglýsingaefni hefur orðið til þess að förðunarvara var keypt. Einnig kom í ljós að þótt traust til áhrifavalda sé talsvert er það verð og gæði sem hafa mest áhrif á kaupákvörðun svarenda. Langflestir svarenda virðast kaupa förðunarvörur í verslunum, hérlendis eða erlendis, frekar en á netinu en upplýsingar á netinu þykja hjálplegar til að skoða framboð á förðunarvörum. Þá treystir afgerandi meirihluti svarenda frekar orðum vina og vandamanna um förðunarvörur þótt svarendur segjast treysta efni frá áhrifavöldum og notendagert efni að einhverju leyti. Lykilatriðið virðist vera að neytendur sjái vöruna í notkun. Í umræðum kemur fram að fátt kom á óvart í niðurstöðunum og flest viriðist í samræmi við niðurstöður fyrri rannsókna. Gildi rannsóknarinnar felst meðal annars í að varpað er ljósi á sýn ungra kvenna á Íslandi á auglýsingar um förðunarvörur á samfélagsmiðlum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rósa Guðbjörg Guðmundsdóttir 2004-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52127
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52127