Back to search

Bifröst University

Sveitarfélagið Árnessýsla: Tækifæri og áskoranir þess að sameina öll sveitarfélög Árnessýslu

Abstract

dc:description.abstract

Sameiningar sveitarfélaga hafa verið mikið til umræðu hér á landi. Stjórnvöld hafa í gegnum tíðina unnið að tilfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga og sveitarfélög hafa mætt því með sameiningum eða samráði. Sveitarfélög Árnessýslu hafa flest gengið í gegnum sameiningar og hefur umræðan um frekari sameiningar verið allnokkur. Sameiningar hafa verið umdeildar, þeir sem tala fyrir sameiningum nota stærðarhagkvæmni og aukið bolmagn sem rök með sameiningum. Helstu rök andstæðinga sameininga hafa verið lýðræðisrök, að með sameiningum sé verið að breikka bilið milli kjörinna fulltrúa og íbúa og að hagsmunir stærri sveitarfélaga verða ofar hagsmunum smærri sveitarfélaga eftir sameiningar. Markmið verkefnisins var að greina tækifæri og áskoranir sameininga sveitarfélaga Árnessýslu og hvort raunhæft væri að horfa til slíkrar sameiningar á næstu árum. Í ritgerðinni er greint er frá fræðilegri þekkingu sem snýr að tækifærum og áskorunum sameininga og rýnt er í heimastjórnarkerfi Múlaþings með hliðsjón af því hvort hægt sé að yfirfæra það á sameiningar í Árnessýslu. Rætt var við fulltrúa sveitarfélaga sýslunnar til að fá innsýn á staðbundin álitamál. Rannsóknin leiðir í ljós að helstu tækifærin felast í hagkvæmni og auknu bolmagni til að tryggja þjónustu á meðan helstu áskoranir snúa að lýðræði, ótta íbúa við afleiðingar og skortur á trausti. Að öllu samanteknu er niðurstaða rannsóknarinnar að óraunhæft sé að stefna að sameiningu allra sveitarfélaga Árnessýslu í náinni framtíð það sem hvata skortir til sameininga. Enginn fjárhagslegur ávinningur er af sameiningunni og áhugi sveitarfélaganna til að ráðast í sameiningar er takmarkaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Matthías Bjarnason 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51358
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51358

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Matthías Bjarnason 2000-. Sveitarfélagið Árnessýsla: Tækifæri og áskoranir þess að sameina öll sveitarfélög Árnessýslu. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51358