Back to search

Bifröst University

Hvaða sérsjónarmið eiga við um brottvísanir fatlaðra barna sem sækja alþjóðlega vernd á Íslandi?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að gera skil á hvaða sérsjónarmið eigi við um brottvísanir fatlaðra barna sem sækja hér alþjóðlega vernd, en þessi réttindi eru vernduð af íslenskum lögum og alþjóðlegum mannréttindasamningum. Samkvæmt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 19/2013 og lögum nr. 80/2016 um útlendinga skulu hagsmunir barns ávallt vera í forgangi við ákvarðanatöku stjórnvalda. Þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um hvort veita eigi barni alþjóðlega vernd er þeim skylt að meta hvers kyns áhrif þær hafa á barnið og framtíðarhorfur þess, sérstaklega ef barnið þarf á sértækri þjónustu að halda vegna fötlunar eða heilsufars. Ísland er skuldbundið af Barnasáttmálanum og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, en í báðum sáttmálunum er lögð skýr áhersla að öll börn, án nokkurs greinarmunar, eigi rétt á öryggi, stuðningi og vernd. Í ritgerðinni er lögð áhersla á hvernig íslensk lög og mannréttindasamningar verja réttindi fatlaðra barna og hvaða takmarkanir eigi við um brottvísun þeirra. Íslensk lög kveða á um að brottvísun megi ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun, sérstaklega þegar um er að ræða börn í viðkvæmri stöðu. Það er ábyrgð stjórnvalda að tryggja að öll börn, sem sækja alþjóðlega vernd hér á landi fái mannúðlega og réttláta málsmeðferð og að vísa barni á brott án fullnægjandi mats á aðstæðum þess gengur gegn þeim skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ása Elín Helgadóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50985
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50985

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ása Elín Helgadóttir 1998-. Hvaða sérsjónarmið eiga við um brottvísanir fatlaðra barna sem sækja alþjóðlega vernd á Íslandi?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50985