Bifröst University
Persónuvernd: Heimildir atvinnurekanda til vinnslu persónuupplýsinga um starfsfólk sitt. Samþykki sem vinnsluheimild í vinnuréttarsambandi.
Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar er að fjalla um heimildir atvinnurekanda til vinnslu persónuupplýsinga um starfsfólk sitt, með hliðsjón af samþykki sem vinnsluheimild í vinnuréttarsambandi. Hvenær telst samþykki sem gild heimild í vinnuréttarsambandi? Í ritgerðinni verður fjallað um vinnsluheimildir sem atvinnurekandi þarf að viðhafa þegar hann vinnur með persónuupplýsingar starfsmanna sinna. Sérstök áhersla er lögð á samþykki sem vinnsluheimild og þær áskoranir sem fylgja því að beita slíku samþykki í vinnuréttarsambandi, þar sem valdaójafnvægi getur haft áhrif á hvort samþykki teljist í raun frjálst. Leitast verður við að svara því við hvaða aðstæður samþykki starfsmanns telst gilt samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og hvort aðrar vinnsluheimildir, svo sem lögmætir hagsmunir atvinnurekanda eða samningsbundin nauðsyn, veiti traustari grundvöll fyrir vinnslu persónuupplýsinga í vinnuréttarsambandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ólafia Jónsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50762
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50762