Back to search

Bifröst University

Geta Ríkislögreglustjóra í aðgerðar- og samhæfingarstjórnun

Abstract

dc:description.abstract

Þegar samfélag er í hættu gagnvart ógn sem erfitt er að eiga við eru viðbragðsaðilar þeir sem taka fyrstu skref í lífsbjargandi aðstoð og verðmætabjörgun. Viðbragðsaðilar vinna oft við erfiðar aðstæður og eru settar þær kröfur að vinna hratt og örugglega. Við slíkar aðstæður þurfa þeir sem á vettvangi vinna að hafa gott bakland sem sinnir yfirsýn aðgerða, útvega fleiri bjargir og aðbúnað og taka þær ákvarðanir sem liggja hjá hærra settum yfirmönnum. Samskipti og upplýsingamiðlun er lykilþáttur í slíkri vinnu þar sem ólíkir aðilar sem alla jafna starfa ekki saman þurfa að samhæfa störf sín til að hámarka árangur. Mikilvægt er að skerpa á skipulagi á öllum stigum viðbragðs en með því að tryggja stjórnun frá upphafi áfalls aukast líkur á að allir þættir samhæfingar eigi auðveldara með að ná áttum sem fyrst og koma reglu á störf. Íslendingar eru vanir áföllum, þá sérstaklega þeirra er snerta náttúruhamfarir, veðurofsa o.s.frv. en takmörk hafa verið umfangi hamfara af mannavöldum á borð við hryðjuverk eða fjöldadráp. Ísland hefur ávallt verið álitið öruggt samfélag enda þekkjast glæpir af svo stórri stærðargráðu almennt ekki hér á landi. Þrátt fyrir það þarf að bregðast við breyttri heimsmynd. Hlutverk RLS er að fara með stjórnun slíkra aðgerða komi til þess að samfélagi eða samfélagshópum verði ógnað á þann hátt. Þeir sem innan þess skipulags vinna mega aldrei hugsa „ef“ enda er hluti þeirra starfa að vera öllu viðbúinn. Lykilorð: Aðgerðarstjórnun. áfallastjórnun, samhæfingarstjórnun, viðbragðsaðilar, Ríkislögreglustjóri

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Þorsteinsson 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49234
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49234

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Þorsteinsson 1996-. Geta Ríkislögreglustjóra í aðgerðar- og samhæfingarstjórnun. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49234