Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn fer höfundar yfir reglur og réttarstöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd þegar kemur að endurviðtöku annars öruggs ríkis. Skýrt er frá helstu hugtökum sem fjallað er um og leitast er við að gera efnið sem aðgengilegast. Farið er yfir stöðu umsækjenda frá því þau koma til landsins, hvernig umsóknar ferlið er og hvaða reglur það eru sem helst eiga við. Jafnframt er farið yfir það hvað gerist þegar sú staða kemur upp að umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur áður hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru öruggu ríki. Farið er yfir þær réttarheimildir sem til staðar eru og hvernig slík mál eru almennt meðhöndluð. Sérstaklega er fjallað um endursendingu og þá aðallega til Grikklands. Heimildum ber saman um að aðstæður þar séu einstaklega bagalegar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir eru tilbaka á grundvelli Dyflinarreglugerðarinnar. Verkefni þetta byggir fyrst og fremst á lögum og reglum sem og öðrum fræðilegum skrifum um efnið. Til þess að dýpa skilning og fá betri yfirsýn yfir efnið var jafnframt framkvæmd eigindleg rannsókn þar sem tekin voru þrjú hálfopin viðtöl við einstaklinga sem eiga það allir sameiginlegt að vinna með umskjendum um alþjóðlega vernd á meðan mál þeirra eru til meðhöndlunar. Þessir þrír einstaklingar vinna hjá Rauða Krossinum, Vinnumálastofnun og Útlendingastofnun og hafa því mjög ólíka sýn á málefnið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hanna Lísa Hafsteinsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49227
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49227