Back to search

Bifröst University

Neytendahegðun á snyrtivörumarkaði ,,Hvaða þættir hafa mest áhrif á kauphegðun neytenda þegar kemur að snyrtivörum á Íslandi?“

Abstract

dc:description.abstract

Snyrtivörumarkaðurinn er ört vaxandi og standa neytendur í dag frammi fyrir ótal valmöguleikum og ákvörðunum þegar kemur á vali á snyrtivörum. Kauphegðun neytenda á snyrtivörumarkaði getur verið mótuð af ýmsum þáttum eins og gæðum, verðlagi og fleira. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvaða þættir hafa mest áhrif á kauphegðun neytenda þegar kemur að snyrtivörum á Íslandi. Greint verður frá fræðilegum bakgrunni verkefnisins en hann byggir á kenningum um neytendahegðun, vörumerkjaþekkingu, stafræna markaðssetningu ásamt því að stuttlega verður fjallað um snyrtivörumarkaðinn á Íslandi. Rannsóknin var framkvæmd með megindlegri rannsóknaraðferð þar sem spurningakönnun var lögð fyrir fólk á samfélagsmiðlum. Alls fengust svör frá 179 þátttakendum og benda helstu niðurstöður á að samfélagsmiðlar hafi mikil áhrif á kauphegðun yngri neytenda á meðan þættir eins og söluhvatar hafa áhrif á alla neytendur. Ímynd vörumerkja og traust gegna einnig mikilvægu hlutverki þegar kemur að kauphegðun neytenda á snyrtivörumarkaði. Með rannsókninni er leitast við að gefa innsýn í það hvernig fyrirtæki á íslenskum snyrtivörumarkaði geta nýtt sér niðurstöður rannsóknarinnar til þess að ná betur til ólíkra markhópa. Lykilorð rannsóknar: Neytendahegðun, kauphegðun neytenda, snyrtivörur, samfélagsmiðlar, vörumerkjatryggð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Ásdís Snorradóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49210
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49210

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Ásdís Snorradóttir 1990-. Neytendahegðun á snyrtivörumarkaði ,,Hvaða þættir hafa mest áhrif á kauphegðun neytenda þegar kemur að snyrtivörum á Íslandi?“. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49210