Back to search

Bifröst University

Róbótar á vakt? Áhrif sjálfvirknivæðingar á starfsfólk í þjónustugreinum á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um áhrif sjálfvirknivæðingar á starfsfólk í þjónustugreinum á Íslandi. Markmiðið var að kanna hvernig sjálfvirknivæðing mótar störf, starfsumhverfi, hefur áhrif á upplifun starfsmanna og hvort hún leiði til aukinnar kröfu um aukna færni í starfi. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við starfsmenn í mismunandi þjónustugreinum og stjórnanda hjá Ölgerðinni. Auk þess var haft samband við sérfræðing í sjálfvirknivæðingu til að fá innsýn í þróunina á þessu sviði. Niðurstöður benda til þess að sjálfvirknivæðing hafi í flestum tilvikum leitt til minna álags og aukinnar nákvæmni í verkferlum, án þess þó að draga úr verkefnum. Sumir starfsmenn upplifðu breytingarnar sem jákvæðar þar sem endurtekin störf minnkuðu en aðrir töluðu um vaxandi óöryggi vegna fækkunar starfa og óvissu varðandi framtíð þeirra í starfi. Rannsóknin varpar ljósi á þau tækifæri og þær áskoranir sem sjálfvirknivæðing felur í sér fyrir starfsfólk í þjónustugreinum. Niðurstöðurnar gætu hugsanlega nýst fyrirtækjum sem stefna á innleiðingu sjálfvirkniferla með áherslu á góða aðlögunarhæfni og velgengni starfsmanna. Skipulögð breytingastjórnun á vinnustöðum og markviss þjálfun starfsmanna gæti dregið úr neikvæðum áhrifum þessara breytinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Katrín Eva Pálmadóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49205
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49205

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Eva Pálmadóttir 1996-. Róbótar á vakt? Áhrif sjálfvirknivæðingar á starfsfólk í þjónustugreinum á Íslandi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49205