Bifröst University
Nær þjóðaröryggisstefna Íslands utan um þær öryggisógnir sem henni er ætlað? Fræðileg samantekt og greining á endurnýjaðri þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um hvort þjóðaröryggisstefna Íslands nái utan um þær öryggisógnir sem henni er ætlað að takast á við. Greiningin byggir á fræðilegum kenningum á borð við raunhyggju, smáríkjafræði, frjálslyndisstefnuna og öryggisvæðingu. Sjónum er beint að helstu áhersluþáttum þjóðaröryggisstefnu Íslands sem endurspegla bæði hnattrænar og svæðisbundnar öryggisáskoranir. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku Íslands í NATO, varnarsamninginn við Bandaríkin og norræna varnarsamvinnu sem eru lykilstoðir í varnar- og öryggismálum landsins. Þá er einnig skoðað hvaða ógnir hafa verið öryggisvæddar með mannöryggi í huga. Notast var við greiningu opinberra skjala, fræðirita og skýrslna til að meta bæði styrkleika og veikleika stefnunnar. Rannsóknin byggir einnig á samanburðargreiningu á þjóðaröryggisstefnu Íslands og stefnum Norðurlandanna með tilliti til nýlegra öryggisbreytinga á alþjóðavettvangi. Áherslur stefnunnar eru greindar í ljósi nýrra áskorana á borð við fjölþáttaógnir, netárásir, loftslagsvá og breytinga á öryggisumhverfi Evrópu vegna aukinnar spennu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Með gagnrýnni nálgun er kannað hvort stefnan sé nægilega heildstæð og hvort hún uppfylli kröfur samtímans. Rannsóknin leiðir í ljós að stefnan sýnir styrkleika í alþjóðlegri samvinnu en skortir dýpri nálgun á nýjar og flóknar ógnir, einkum í netöryggismálum og viðnámsþoli innviða. Niðurstöðurnar leggja grunn að frekari umræðu um varnar- og öryggismál Íslands í framtíðinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðbergur Kristjánsson 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49197
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49197