Back to search

Bifröst University

Áhorfendaþróun innan sviðslistastofnana á Íslandi : samsetning áhorfenda og leiðir til frekari þróunnar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er leitast við því að greina hver fjölbreytileikinn í samsetningu áhorfenda innan sviðslistastofnana á Íslandi er. Rannsóknin var í tveimur hlutum og var notast við blandaða rannsóknaraðferð. Annarsvegar er um megindlega rannsókn að ræða þar sem gögn úr úrtaksrannsókn á vegum Hagstofu Íslands voru greind. Í úrtaksrannsókninni var spurt út í aðsókn á sviðslistasýningar, tegund sviðslistasýninga sem viðkomandi hafði farið á og hvar á landinu. Svörin voru svo greind eftir bakgrunnsbreytum eins og kyni, aldri, búsetu, bakgrunni og menntun. Hinsvegar var um eigindlega rannsókn að ræða þar sem tekin voru djúpviðtöl við fulltrúa þriggja sviðslistastofnana landsins til þess að kanna upplifun og aðferðir þeirra innan áhorfendaþróunnar og hvernig stofnanirnar vinna að því að tengjast ólíkum áhorfendahópum. Rannsóknin leiddi í ljós að ákveðinn kjarnahóp var að finna meðal áhorfenda stofnananna og að auka mætti fjölbreytileika áhorfenda með því að reyna að ná til breiðari hóps. Niðurstöðurnar sýndu einnig að stofnanirnar taka samfélagslegt hlutverk sitt alvarlega en að þær mættu vera markvissari í aðferðum sínum við að ná til fjölbreyttra hópa áhorfenda. Þannig voru ákveðin „göt“ í áhorfendasamsetningu stofnananna og þá sérstaklega þegar um unga áhorfendur eða áhorfendur af erlendum uppruna er að ræða. Lykilorð: áhorfendaþróun, áhorfendur, sviðslistir, menningarlegur fjölbreytileiki, aðgengi, þátttaka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Björk Haraldsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48300
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48300

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Björk Haraldsdóttir 1985-. Áhorfendaþróun innan sviðslistastofnana á Íslandi : samsetning áhorfenda og leiðir til frekari þróunnar. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48300