Back to search

Bifröst University

Breytingar á menningu innan rótgróinna fyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Í verkefni þessu leitast rannsakandi við að kanna breytingu á menningu innan rótgróinna fyrirtækja. Rannsóknarspurningarnar sem leitast er svara við eru: Eru mælingar í samræmi við upplifun starfsfólks? Hvaða aðferðum breytingastjórnunar var beytt við framkvæmd breytinganna? Var unnið út frá nýrri stefnu og gildum? Við framkvæmd rannsóknarinnar leitaðist rannsakandi við að athuga hvort að upplifun starfsmanna væri í samræmi við mælingar, hvaða aðferðum var beytt og síðast hvort unnið var útfrá nýrri stefnu og nýjum gildum. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem voru tekin viðtöl við starfsmenn og svör þeirra borin saman við kannanir frá fyrirtækinu X. Í fræðilegum bakgrunni verkefnisins er meðal annars skoðað hugtakið breytingastjórnun, ýmsar kenningar, ástæðu breytinga, tegund þeirra og stærð og þörfina á breytingum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru ekki afgerandi á öllum sviðum, en höfundi þykir þær áhugaverðar og vert að skoða betur t.d. raunverulega starfsánægju og upplýsingaflæði innan fyrirtækja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Ósk Vilbergsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48299
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48299

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Ósk Vilbergsdóttir 1984-. Breytingar á menningu innan rótgróinna fyrirtækja. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48299