Back to search

Bifröst University

Hver er ávinningur Bílaumboðsins Öskju af innleiðingu nýs vörutrés?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um innleiðingu á nýju vörutré á vörusviði Bílaumboðsins Öskju. Bílaumboðið Askja er umboðsaðili Mercedes-Benz, KIA, Honda og Smart á Íslandi og sinnir varahluta- og viðgerðaþjónustu fyrir bifreiðar frá þessum framleiðendum. Með stækkandi markaðshlutdeild Öskju á bílamarkaði hefur sala varahluta aukist í takt við það. Sá grunnur sem upphaflega var lagður í upplýsingatæknikerfum Öskju til að skrásetja og halda utan um varahluti uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem stjórnendur gera til þeirra gagna. Erfitt er að vinna töluleg gögn upp úr því auk þess sem efast hefur verið um áreiðanleika skráningarinnar. Höfundi var því falið að leggja drög að nýju vörutré með það að markmiði að sníða af þá vankanta sem voru á fyrra fyrirkomulagi. Niðurstöður gefa til kynna að tekist hafi að bæta skráningu varahluta í vörutré þannig að úr því sé hægt að vinna áreiðanleg gögn á skemmri tíma en áður. Einnig hefur vinna við verðlagningu, afsláttarkjör til viðskiptavina og röðun á vörum inn í vörutréð annað hvort verið einfölduð eða sjálfvirknivædd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Ómar Viggósson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48283
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48283

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Ómar Viggósson 1978-. Hver er ávinningur Bílaumboðsins Öskju af innleiðingu nýs vörutrés?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48283