Back to search

Bifröst University

Lagaumhverfi Réttargæslumanna : hvað er hægt að bæta í lagaumhverfi réttargæslumanna þannig að þeir geti betur sinnt mikilvægu hlutverki sínu í þágu brotaþola í sakamálum?

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta er unnið með það að markmiði að varpa ljósi á það hvort íslensk lög geti gengið lengra við að tryggja réttargæslumönnum nauðsynleg tól til hagsmunagæslu brotaþola í sakamálum, hverjir séu helstu vankantar og þá hvaða leiðir séu mögulegar til úrbóta. Lokatakmark verkefnisins er að svara rannsóknarspurningunni: „Hvað er hægt að bæta í lagaumhverfi réttargæslumanna þannig að þeir geti betur sinnt mikilvægu hlutverki sínu í þágu brotaþola í sakamálum?“ Undirritaður tók þá ákvörðun að notast við blandaða aðferð, framkvæma lögfræðirannsókn og eigindlega rannsókn í formi viðtala við lögmenn sem hafa reynslu af störfum sem réttargæslumenn, og sem verjendur. Höfundi þótti mikilvægt að fá persónuleg og jafnvel persónubundin viðhorf þeirra sem við þetta starfa og var það til þess fallið að komast að því hvort brotaþolar séu jafn óvarðir í sakamálum, eins og sumir telja, og hvort athugasemdir um takmarkandi möguleika réttargæslumanna við rannsókn og rekstur sakamála séu á rökum reistar. Auk hinna eigindlegu gagna sem nýtt eru við vinnslu þá fór fram greining á þeim réttarheimildum sem málaflokkinn snerta og þær breytingar sem hafa verið gerðar á lögum. Höfundur reyndi að nálgast viðfangsefnið með það að leiðarljósi að geta skýrt meginhugtök þess á mannamáli. Niðurstöður gefa til kynna að staða réttargæslumanna hefur styrkst töluvert síðastliðin ár, en þó að einhverra mati ekki nóg, þrátt fyrir stórt skref löggjafans árið 2022 með lagabreytingu sem færði réttargæslumönnum réttindi og heimildir, sem hafði af mörgum verið talið að næðist ekki fram án þess að veita brotaþola stöðu sem aðila máls.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pétur Snær Hansen Jónsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48274
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48274

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Snær Hansen Jónsson 1987-. Lagaumhverfi Réttargæslumanna : hvað er hægt að bæta í lagaumhverfi réttargæslumanna þannig að þeir geti betur sinnt mikilvægu hlutverki sínu í þágu brotaþola í sakamálum?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48274