Back to search

Bifröst University

Hver eru skilyrði fyrirvaralausrar uppsagnar opinberra starfsmanna?

Abstract

dc:description.abstract

Þegar opinberum starfsmanni er sagt upp störfum nýtur hann almennt mun meiri réttarverndar heldur en gerist á hinum almenna vinnumarkaði. Meginreglan er sú að veita skuli opinberum starfsmanni áminningu áður en að honum er sagt upp störfum og gefa honum þannig tækifæri til að bæta ráð sitt. Ef um mjög alvarlegt brot er að ræða kemur þó til skoðunar hvort heimilt sé að víkja honum fyrirvaralaust úr starfi án undangenginnar áminningar. Markmið þessarar rannsóknar var að leiða í ljós hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi svo hægt sé að víkja opinberum starfsmanni fyrirvaralaust úr starfi án undangenginnar áminningar. Niðurstöður sýndu að slíkar ákvarðanir þurfi ávallt að vera byggðar á málefnalegum sjónarmiðum og að ekki sé hægt að taka afstöðu til þess hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi heldur verður að meta hvert mál fyrir sig með tilliti til allra aðstæðna. Þannig geta ýmis atriði skipt máli varðandi mat á því hvort heimilt sé að víkja opinberum starfsmanni fyrirvaralaust úr starfi án undangenginnar áminningar og hafa dómstólar lokaorðið varðandi það hvort skilyrði séu til fyrirvaralausrar uppsagnar eða ekki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berta Lind Jóhannesdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48272
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48272

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berta Lind Jóhannesdóttir 1992-. Hver eru skilyrði fyrirvaralausrar uppsagnar opinberra starfsmanna?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48272