Back to search

Bifröst University

Hönnunarhugsun utan hefðbundins hönnunarumhverfis : áskoranir og kostir innleiðingar hönnunarhugsunar á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi í dag hefur áhugi á notendamiðlægri hönnun aukist á síðastliðnum árum. Í þessari ritgerð er rannsakað hvað felst í því að innleiða aðferðafræðina „hönnunarhugsun“ (e. design thinking) í stofnunum og fyrirtækjum sem skilgreinast utan hefðbundis hönnunargeira. Einnig er skoðað hvað skipar hönnuðarhugsuð og hvaða eignleika þarf að hafa í huga við samsetningu teyma. Rannsóknin er eigndleg rannsókn framkvæmd með viðtölum við þrjá Íslendinga sem eiga það sameiginlegt að nota hönnunarhugsun sem leiðandi aðferðfræði á sínum starfsvettvangi utan hönnunargeirans. Átt er við gagnrýndar annmarkanir aðferðfræðarinnar, sérstaklega hvað varðar mælanleika ávinnings, og þær bornar saman við niðurstöður. Niðurstöður rannsóknar sýndu að til þess að innleiða hönnunarhugsun þarf að gefa sér tíma, bæði til að læra aðferðafræðina sjálfa en einnig tíma til að aðlaga hana inn í vinnustaðarmenninguna. Það þarf að skipa teymi hönnuðarhugsuða, en það eru einstaklingar sem búa yfir sérstakri hæfni til að beita heildstæðri hugsun, hafa ríka samkennd, eru bjartsýn, opin fyrir tilraunamennsku og geta unnið í samvinnu við aðra (Tim Brown, 2008). Hönnuðarhugsuðir eru því ekki endilega einstaklingar sem eru menntaðir hönnuðir, heldur eru þeir einstaklingar með opinn hug. Höfundur varpar einnig fram þeirri kenningu að áreiðanlegur mælanleiki sé jafnvel óþarfi í hönnunarhugsun, þar sem aðferðafræðin er byggð á fram-og-til-baka ferli sem sér til þess að ávallt sé rými til endurbóta. Þessar niðurstöður eru mikilvægar til að mæta ört vaxandi áhuga á aðferðafræðinni og að geta veitt innsýn í hvernig ferli innleiðingar getur verið og hvað þarf að hafa í huga við þá innleiðingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgitta Rúnarsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48267
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48267

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgitta Rúnarsdóttir 1997-. Hönnunarhugsun utan hefðbundins hönnunarumhverfis : áskoranir og kostir innleiðingar hönnunarhugsunar á Íslandi. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48267