Back to search

Bifröst University

Samfélagsábyrgð íslenskra félagsliða

Abstract

dc:description.abstract

Vitundarvakning hefur orðið í samfélaginu á síðustu misserum er kemur að því að fyrirtæki taki meiri ábyrgð á skyldum sínum gagnvart samfélaginu og hafa félagslið víða um heim ekki verið þar undanskilin. Krafa er gerð af samfélaginu til félagsliða að þau starfi og komi fram með ábyrgum hætti gagnvart samfélaginu þar sem gildi og jafnrétti er í hávegum höfð. Félagslið eru partur af samfélaginu og gegna þau starfi við uppeldi framtíðarkynslóða er kemur að hreyfingu og góðum gildum áamt því að vera félagsmiðstöð fyrir samfélagsþegna, unga sem aldna. Í þessari rannsókn er skoðað hvernig félagslið á Íslandi eru að sinna ábyrgðarskyldu sinni gagnvart samfélaginu og hvort það sé rauður þráður á milli samfélagsábyrgðar félagsliða og þjónandi forystu innan forystu þeirra. Notast var við eigindlega rannsókn þar sem viðmælendur frá þremur félagsliðum á Íslandi ásamt viðmælenda frá Knattspyrnusambandi Íslands ásamt voru erlendar rannsóknir hafðar til viðmiðunar. Markmið rannsóknar er að skoða hvort það séu tengsl milli samfélagsábyrgðar félagsliða og stjórnunarforystu þeirra. Niðurstöður leiddu í ljós að félagslið taka ábyrgð á samfélagi sem þau starfar innan meðal annars með uppeldisstarfi yngri flokkana sem og sem félagsmiðstöð fyrir samfélagið. Íslensk félagslið eru talsvert frá því sem er að gerast hjá erlendum félagsliðum en niðurstaða rannsóknarinnar má leiða að það sé vegna smæðar þjóðarinnar, manneklu og fjárskorts frekar en vilja þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Ómarsdóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46347
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46347

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Ómarsdóttir 1972-. Samfélagsábyrgð íslenskra félagsliða. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46347