Back to search

Bifröst University

List augnabliksins : skrásetning og varðveisla samtímadansverka á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn var lagt upp með að skoða stöðu varðveislu dansverka á Íslandi, aðferðir danshöfunda við skrásetningu og varðveislu dansverka og helstu hindranir þeirra hvað það varðar. Notast var við blandaðar rannsóknaraðferðir. Eigindleg rannsókn fólst í viðtölum við sex viðmælendur, þar af fjóra danshöfunda og tvo forsvarsaðila stofnana sem tengjast varðveislu dans. Í megindlegum hluta rannsóknar var spurningakönnun send út til meðlima Félags íslenskra listdansara til að fá víðari sýn á stöðu varðveislu dansverka hér á landi og aðferðir íslenskra danshöfunda við skrásetningu og varðveislu þeirra. Niðurstöður leiddu í ljós að staða varðveislu á Íslandi er slæm, sérstaklega þegar litið er til sjálfstæðu danssenunnar. Verk Íslenska dansflokksins eru að mestu varðveitt. Algengasta skrásetningaraðferðin er myndbandsupptaka og flestar upptökur eru varðveittar á vefsíðum á netinu, svo sem Vimeo. Helstu hindranir danshöfunda er skortur á tíma og fjármagni sem á upptök sín í starfsumhverfi sjálfstætt starfandi danslistamanna. Eins vantar mikið upp á utanaðkomandi stuðning til danslistafólks. Það mætti bæta með aukinni umræðu um dans innan fræðasamfélagsins og opinberri stefnumótun ráðuneytis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorgerður Atladóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46346
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46346

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorgerður Atladóttir 1996-. List augnabliksins : skrásetning og varðveisla samtímadansverka á Íslandi. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46346