Back to search

Bifröst University

Hvaða aðferðum er beitt við sameiningar ríkisstofnanna?

Abstract

dc:description.abstract

Í mars 2022 var skipaður starfshópur um sameiningu héraðsdómstólanna vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar um að sameining héraðsdómstólanna væri skilvirkasta og árangursríkasta leiðin til að auka samræmingu innan dómskerfisins. Höfundur var, sem dómritari og almennur starfsmaður, tilnefnd í samráðshóp vegna þessara hugmynda og í framhaldi af þeirri vinnu vaknaði sú spurning hjá höfundi hvort samráðshópar af þessu tagi væru sýndarmennska eða hvort raunverulega væri ætlunin að hlusta á raddir sem flestra. Í ritgerð þessari er farið yfir tilurð héraðsdómstólanna, hvers vegna þeir voru stofnaðir, lög um þá og umsagnir í tengslum við stofnun þeirra. Einnig skoðar höfundur þær lagabreytingar sem gerðar hafa verið og hafa haft áhrif á starfsemi héraðsdómstólanna og umsagnir við þær breytingar ásamt öðrum frumvörpum sem lögð hafa verið fram en ekki orðið að lögum af ýmsum ástæðum. Þau gögn sem höfundur skoðaði voru fyrst og fremst gögn frá Alþingi, ráðuneytum og Ríkisendurskoðun auk hugtaksins breytingastjórnun og kenninga um breytingastjórnun í tengslum við sameiningar. Einnig gerði höfundur megindlega rannsókn sem send var á starfsmenn þriggja sameinaðra ríkisstofnanna og kemur fram í svörum starfsmanna hversu misjöfn upplifun þeirra var af sameiningarferlinu. Í lokin eru þessar upplýsingar dregnar saman og vonar höfundur að þær megi verða til ábendinga þannig að þau sem koma að sameiningu ríkisstofnanna séu markmiðin ljós og leiðirnar til að ná markmiðunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Elfa Laugdal Stefánsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46342
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46342

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Elfa Laugdal Stefánsdóttir 1967-. Hvaða aðferðum er beitt við sameiningar ríkisstofnanna?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46342