Back to search

Bifröst University

Er ástæða til að endurskoða gallaþröskuld 18. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup

Abstract

dc:description.abstract

Leitast er eftir í ritgerð þessari að skoða hvort ástæða sé til að endurskoða gallaþröskuld 18. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Litið verður á þær fræðigreinar sem hafa verið skrifaðar um gallamál í fasteignum og laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Reifaðir verða dómar Hæstaréttar, Landsréttar sem varða álitaefnið. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar snúa að því að álykta mætti að ástæða sé kominn til að endurskoða gallaþröskuldinn. Er þar helst að nefna að fasteignaverð hefur hækkað umtalsvert frá 2002 til ársins 2022 og geta því viðmið hafa breyst frá gildistöku laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Eign sem kostaði 20 miljónir króna árið 2002 og var þá 20 ára gömul, hefur hækkað í verði um rúmlega helming og er því kominn yfir 40 miljónir króna og er orðinn 40 ára gömul árið 2022. Viðmið eru þau sömu og jafnvel orðin meiri þar sem settar eru meiri kröfur á gamlar eignir að gallaþröskuldurinn sé náð sem er 10% af kaupverði fasteignar. Aldur eignar getur haft meiri áhrif og þarf viðgerðarkostnaður að vera 4 miljónir, í staðinn fyrir 2 miljónir þegar lög nr. 40/2002 um fasteignakaup tóku gildi árið 2002. Sé tekið mið af einungis breytingum á kaupverði fasteigna og þeim hækkunum er hægt að sjá ástæðu til að gera breytingar, það á þó einnig við ef dómar eru skoðaðir er ekki hægt að álykta að tekist hafi að festa í sessi viðmið sem unnt er að styðjast við í framkvæmd. Lagðar verða fram tillögur að breytingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elmar Guðlaugsson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46331
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46331

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elmar Guðlaugsson 1993-. Er ástæða til að endurskoða gallaþröskuld 18. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46331