Back to search

Bifröst University

"Ætlaðir þú að kaupa þetta?" Áhrif framsetninga á vörum í verslunum Hagkaups á Íslandi á sölutölur og skyndikaup

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður rannsakað með hvaða hætti framstillingar og markaðsefni til stuðnings vara hafa áhrif á sölutölur og skyndikaup. Tvær nokkuð ólíkar vörur; sykurlaust Appelsín og Ballerina kex voru skoðaðar með svipuðum hætti þar sem þremur mismunandi framstillingum var beitt yfir rúmlega þriggja vikna tímabil. Breytingar á framstillingum voru gerðar í tveimur Hagkaups verslunum; Skeifunni og Garðabæ. Einnig var notast við spurningalista við hverja breytingu sem var hannaður til að greina hvort um skyndikaup væri að ræða sem og sölutölur verslananna, bæði þeirra sem breyturnar fóru fram í og öðrum verslunum Hagkaups á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var gert til að greina hvort breyturnar hefðu þessi áhrif á söluna eða hvort að um óþekkt utanaðkomandi áhrif væri að ræða. Til þess að átta sig betur á eðli skyndikaupanna í vöruflokkunum var lagður örstuttur spurningalisti fyrir kaupendur af öllu gosi og öllu sætu kexi til þess að sjá ákveðna grunnlínu skyndikaupa í báðum vöruflokkum. Rannsóknarspurningin er tvíþætt: „Hvaða áhrif hefur framsetning vöru á sölutölur og skyndikaup?“ Notast var við megindlegar rannsóknaraðferðir við upplýsingaöflun þar sem spurningar sem lagðar voru fyrir voru að öllu leyti lokaðar og síðar skoðaðar sölutölur til viðmiðunar. Sölutölur sýndu með nokkuð skýrum hætti að mismunandi framsetningar hafa vissulega áhrif en skyndikaup voru þó aðeins flóknari í greiningu. Þá reyndi á hæfni höfunda að yfirfara mikið magn af gögnum en það er trú rannsakenda að skyndikaup haldist að miklu leyti í hendur við auknar sölutölur. Það mátti sjá skýr dæmi um að skyndikaup jukust í takt við markaðsaðgerðir og framsetningar. Sölutölur gáfu einnig skýr merki um aukningu í takt við framkvæmd og umfang markaðsaðgerða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðrún Bína Kristófersdóttir 1994-
  • Guðný Helgadóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46323
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46323

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Bína Kristófersdóttir 1994-; Guðný Helgadóttir 1994-. "Ætlaðir þú að kaupa þetta?" Áhrif framsetninga á vörum í verslunum Hagkaups á Íslandi á sölutölur og skyndikaup. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46323