Back to search

Bifröst University

Við erum að drukkna : hvernig má styðja við hringrásarhagkerfi textíls og draga úr sóun hér á landi?

Abstract

dc:description.abstract

Ofneysla á textíl er stór partur af úrgangsvandamálum heimsins. Með tilkomu lagabreytinga um úrgangsstjórnun sem tóku gildi 1. janúar 2023 sem endurspegla tilskipun Evrópusambands um úrgangsstjórnun, urðu breytingar á kröfum um söfnun textíls. Rannsakendur ákváðu að skoða hver staðan væri á Íslandi þegar að kemur að hringrásarhagkerfi textíls og hvort það sé hægt að gera betur. Góð skil eru gerð á helstu hugtökum, kenningum og fyrri rannsóknum í fræðilegum bakgrunni, einnig breytingum á úrgangslögum sem og tilskipun Evrópusambandsins. Farið er yfir samfélags- og umhverfisáhrif textíls og skoðuð textíl fyrirtæki á Íslandi sem vinna að sjálfbærni í sínum rekstri. Framkvæmdar voru bæði eigindlegar og lýsandi rannsóknir. Í eigindlegu rannsókninni voru tekin viðtöl við fjóra viðmælendur sem eiga það allir sameiginlegt að vinna hjá fyrirtækjum sem taka á móti notuðum textíl. Lýsandi rannsóknin fól í sé samanburð á Íslandi og Danmörku, þar sem útgefnar skýrslur og upplýsingar um hringrásarhagkerfi textíls voru rýndar og samanburður gerður. Helstu niðurstöður voru hvað lítið var til af rannsóknum um stöðu textíls í hringrásarhagkerfinu á Íslandi sem takmarkaði samanburð og þær upplýsingar sem rannsakendur komust yfir eru ábótavanar. Kom okkur mikið á óvart magnið af notuðum textíl sem safnast á Íslandi og einnig hvað mikið misræmi er á milli magns sem gefið er upp og áætlaðs magns sem fæst frá yfirvöldum. Telja rannsakendur það vera of mikið misræmi þar á milli. Einnig komust við að því að það megi gera mun betur í flokkun textíls á Íslandi með því markmiði að koma textílnum í áframhaldandi notkun innanlands. Það sem ekki er hægt að nýta áfram væri þá hægt að senda erlendis flokkað til endurvinnslu til að auka verðmæti textílsins samanborið við Danmörku.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Stefanía Sif W. Dison 1975-
  • Íris Gróa Sveinsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46319
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46319

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefanía Sif W. Dison 1975-; Íris Gróa Sveinsdóttir 1987-. Við erum að drukkna : hvernig má styðja við hringrásarhagkerfi textíls og draga úr sóun hér á landi?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46319