Bifröst University
Hvert er viðhorf stjórnarmanna björgunarsveita gagnvart sérhæfðu stjórnarnámskeiði?
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessa verkefnis er að fjalla um rannsókn sem var framkvæmd til að kanna áhuga og viðhorf stjórnarmanna björgunarsveita til námskeiðs sem væri sérhannað með þarfir þeirra í huga. Rannsóknarspurningin sem leitast var við að svara er: Hvert er viðhorf stjórnarmanna björgunarsveita gagnvart sérhæfðu stjórnarnámskeiði? Í rannsókninni var bæði stuðst við megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir, þar sem spurningakönnun var send á stjórnir björgunarsveita í tölvupósti og henni dreift á samfélagsmiðlinum Facebook ásamt því að viðtöl voru tekin við tvo einstaklinga sem hafa þekkingu og reynslu af viðfangsefninu. Í fræðilegum bakgrunni verkefnisins er meðal annars fjallað um sögu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, stjórnskipulag félagsins og aðildareininga þess. Þá er almenn umfjöllun um sjálfboðastörf, muninn á launuðu starfsfólki og sjálfboðaliðum, hlutverk leiðtoga í sjálfboðastarfi ásamt fleiru. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að viðhorf stjórnarfólks gagnvart sérhæfðu námskeiði sé jákvætt. Svör þátttakenda gefa til kynna víðtæka viðurkenningu á hugsanlegum ávinningi af námskeiðinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Bergrós Ýr Ólafsdóttir 1995-
- Sigrún Flygenring 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46318
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46318