Back to search

Bifröst University

Þróun vátrygginga : hvernig hefur íslenskur vátryggingmarkaður þróast og hver er líkleg framtíð vátrygginga á Íslandi.

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna hvernig vátryggingamarkaðurinn á Íslandi hefur þróast í gegnum tíðina og hvernig vörur hans, markaðsaðstæður, kauphegðun og útreikningar á tryggingaiðgjöldum hafa verið í stöðugri þróun í kjölfar breytinga á hegðun okkar og lífshring. Gerð var eigindleg rannsókn til að safna upplýsingum. Rætt var við fimm einstaklinga, þar af fjóra sem starfa við vátryggingar og hafa áralanga reynslu af vöruþróun og vörustjórnun, og einn sem hefur ekki unnið við vátryggingar en hefur mikla reynslu af tryggingum bæði sem eigandi fyrirtækis og sem einstaklingur. Rannsóknarspurningin sem sett var fram var: Þróun trygginga. Hvernig hefur íslenskur vátryggingamarkaður þróast og hver er líkleg framtið vátrygginga á Íslandi? Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að vöruþróun er frekar hæg og reynir að fylgja eftir nýjungum í uppgötvunum og bregðast við aðstæðum frekar en að reikna út hvað framtíðin ber í skauti sér. Markaðsaðstæður hafa verið snúnar á vátryggingamarkaði, oft á tíðum vegna afskipta hins opinbera en einnig vegna smæðar markaðarins og erfiðu aðgengi að honum. Kauphegðun einstaklinga og fyrirtækja hefur tekið miklum breytingum, frá símtölum og heimsóknum yfir í rafrænar lausnir, en umbreytingin í rafrænar lausnir gengur þó hægt. Iðgjaldaútreikningar hafa tekið stökkbreytingum í gegnum tíðina með örari tækniframþróun í úrvinnslu stórra gagnasafna og í framtíðinni er óumflýjanlegt að gervigreind muni taka yfir þá útreikninga að mestu eða öllu leyti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Óli Rafn Jónsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46317
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46317

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óli Rafn Jónsson 1974-. Þróun vátrygginga : hvernig hefur íslenskur vátryggingmarkaður þróast og hver er líkleg framtíð vátrygginga á Íslandi.. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46317