Back to search

Bifröst University

Fyrirtæki framtíðarinnar

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hefur átt sér mikil þróun á upplýsingatækni og markaðsumhverfi fyrirtækja. CRM eða stefnumiðuð stjórnun viðskiptatengsla er aðferðafræði sem mörg fyrirtæki hafa tekið upp hjá sér til að sporna við kröfum markaðarins og vera í takt við þá þróun sem á sér stað. CRM aðferðafræðin hefur skilað fyrirtækjum góðum árangri í samskiptum og varðvörslu gagna um viðskiptavini sína sem hefur skilað fyrirtækjum arðbærari rekstri, minnkað brottfall núverandi viðskiptavina, skilvirkari verkferlum og auðveldað starfsfólki að vinna vinnu sína. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hver hugsanlegur ávinningur fyrirtækisins Daga hf. væri að taka upp stefnumiðaða stjórnun viðskiptatengsla. Því var rannsóknarspurningin: „Hver er hugsanlegur ávinningur stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla fyrir fyrirtækið Daga hf.?“ sett fram. Til að komast nær því hver hugsanlegur ávinningur fyrirtækisins væri framkvæmdi rannsakandi eigindlega rannsókn sem fólst í því að taka viðtöl við starfsmenn fyrirtækisins Daga hf. ásamt CRM sérfræðingum. Svör úr viðtölunum áttu að varpa ljósi á hver hugsanlegur ávinningur fyrirtækisins væri með því að taka upp stefnumiðaða stjórnun viðskiptatengsla. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að ef fyrirtækið hefur skýra CRM stefnu, markmið fyrirtækisins eru skýr og starfsfólk þess virkjað getur ávinningurinn af stefnumiðaðri stjórnun viðskiptatengsla verið mikill fyrir fyrirtækið. Fyrirtækið er í uppbyggingu CRM kerfis og verkefnið komið af stað. Fyrirtækið finnur þörfina fyrir breyttar áherslur og verkferla. Mikil vinna er fram undan hjá fyrirtækinu vegna innleiðingar CRM kerfis. Engin CRM stefna er til staðar innan fyrirtækisins og ekki hafa verið sett fram skýr markmið. Starfsfólk fyrirtækisins er misvel upplýst um komandi breytingar. Fyrirtækið er að byggja upp CRM kerfið sitt eins og staðan er í dag og vonast rannsakandi til þess að rannsókn þessi geti aðstoðað fyrirtækið fyrir komandi verkefni tengd CRM innan fyrirtækisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Thelma Rut Svansdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45193
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45193

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Thelma Rut Svansdóttir 1991-. Fyrirtæki framtíðarinnar. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45193