Back to search

Bifröst University

Hver er fylgnin á milli stýrivaxtabreytinga Seðlabanka Íslands og vaxtabreytinga á inn- og útlánum viðskiptabankanna?

Abstract

dc:description.abstract

Mikil sveifla hefur verið á stýrivöxtum seinustu þrjú ár, vegna heimsfaraldar og stríðs í Evrópu meðal annars. Þar sem vextir viðskiptabankanna fylgja stýrivöxtunum er forvitnilegt að skoða hver fylgnin er þar á milli, hve vel fylgdu bankavextir stýrivöxtum í þessum miklum sveiflum sem hafa verið síðustu þrjú ár. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hver þessi fylgni er og bera saman tímabilin þar sem var lækkun, við tímabil þar sem var hækkun. Rannsóknarspurningin sem er lögð fram er: ,,Hver er fylgnin á milli stýrivaxtabreytinga Seðlabanka Íslands og vaxtabreytinga á inn- og útlánum viðskiptabankanna?‘‘ Höfundur veit ekki til þess að svipuð rannsókn hefur verið gerð hérlendis en það fundust þrjár erlendar rannsóknir við vinnslu verkefnisins. Erlendu rannsóknirnar notuðust þó við aðra tölfræðilega útreikninga en þó er hægt að bera niðurstöður þeirra og kenningar að hluta til saman við niðurstöður þessarar rannsóknar. Til þess að svara þessari spurningu var notast við tölfræðilega útreikninga. Gerð var aðhvarfsgreining og núlltilgáta lögð fram. Skýringarhlutfall var skoðað, til að skoða hver fylgnin er á milli stýrivaxtabreytinga og bankavaxtabreytinga. P-gildið var reiknað til að sjá hvort tölfræðilegir útreikningar væru marktækir og hægt að hafna núlltilgátunni. Í flestum tilfellum benda niðurstöður aðhvarfsgreiningarinnar til þess að 90% breytinga á vöxtum bankanna séu vegna áhrifa stýrivaxtabreytinganna. Þegar samanburður var gerður á milli lækkunartímabils og hækkunartímabils stýrivaxtanna voru ekki afgerandi niðurstöður um betri fylgni hjá öðru hvoru tímabilinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Theodóra Sigbjörnsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45188
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45188

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Theodóra Sigbjörnsdóttir 1988-. Hver er fylgnin á milli stýrivaxtabreytinga Seðlabanka Íslands og vaxtabreytinga á inn- og útlánum viðskiptabankanna?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45188