Bifröst University
Spjallmenni og notendur : könnun á viðhorfi notenda á þjónustu spjallmenna í íslenskum fyrirtækjum
Abstract
dc:description.abstractÖrar tæknibreytingar hafa átt sér stað undanfarna áratugi. Fimmta iðnbyltingin er hafin með tækninýjungum sem byggja á þeim sem fyrir voru og viðurkenningu samstarfs manna og véla. Fyrirtæki hafa orðið að fylgja tækniþróun til þess að missa ekki samkeppnisstöðu sína og viðskiptavinir þeirra hafa þurft að laga sig að breyttum þjónustuháttum og læra á nýjar rafrænar lausnir. Spjallmenni er nú að finna á vefsíðum ýmis konar þjónustufyrirtækja og stofnana. Gervigreind er orð yfir tækni sem gerir vélum kleift að leysa verkefni sem aðeins menn gátu áður gert og spjallmenni nýta sér. Vélnám og náttúruleg málvinnsla eru hluti af gervigreind og gerir spjallmenni fær um að skilja og bregðast við fyrirspurnum notenda. Þau hafa flest getu til að leysa úr fjölbreyttum fyrirspurnum viðskiptavina allan sólarhringinn og koma þar inn í teymi starfsmanna. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á það hvert viðhorf viðskiptavina íslenskra þjónustufyrirtækja er til notkunar á spjallmennum. Megindleg rannsókn var gerð með slembiúrtaki, 230 þátttakendur svöruðu rafrænni könnun um notkun og viðhorf til spjallmenna. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að marga þætti þurfi að bæta til þess að spjallmenni verði vænlegur kostur fyrir alla notendur í íslenskum fyrirtækjum. 85% þáttakenda kjósa frekar að vera í samskiptum við mannlegan þjónustufulltrúa heldur en spjallmenni. Fyrirtæki ættu að huga að því að bæta getu spjallmenna til þess að skilja fyrirspurnir notenda, efla áreiðanleika þeirra, gera þau mannlegri í samskiptum og auðvelda notkun þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karen Mist Matthíasdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45183
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45183