Bifröst University
Vegna brota gegn nauðgunarákvæði 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940
Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð fjallar um brot gegn nauðgunarákvæði 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og hvernig refsingar koma fyrir. Dómar voru skoðaðir þar sem megináherslan var lögð á að sjá hvernig refsað væri fyrir brot gegn áðurnefndri lagagrein. Þróun lagaákvæðisins um nauðgun í almennu hegningarlögunum var umfjöllun í sér kafla, þá voru ýmis hugtök er varða kynferðisbrot útskýrð. Hugtakið refsing var skilgreind og sérstök áhersla lögð á Hæstaréttardóma eftir síðustu lagabreytingu. Fjallað var um Noreg í sjöunda kafla ritgerðarinnar þar sem lög og dómstólar eru hluti af umfjölluninni. Varpað er fram þeirri mynd sem er í norsku réttarkerfi þegar kemur að kynferðisbrotum. Niðurstöður sýndu að þrátt fyrir víðan refsiramma í 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga eru refsingar fyrir nauðgun heldur í lægri kantinum en það er í takt við réttarvitund almennings sem hefur lengi krafist þyngri refsinga. Þetta virðist vera sameiginlegt vandamál beggja þjóða sem teknar voru fyrir. Þá sést einnig á skýrslum frá norsku lögreglunni að þrátt fyrir að nauðgunarmálum virðist fækka liggur vandamálið í þeirra löggjöf og er ekki að finna samþykkisskilyrði þar líkt og er að finna hér. Það þarf að fara í mikla vinnu til að auka traust almennings á dómstólum með því meðal annars að fara í mikla forvarnar vinnu, minnka málsmeðferðartímann, og nota refsiramman betur. Það er alveg ljóst að of fá mál eru tilkynnt bæði á Íslandi og í Noregi og það þarf að vera markmið dómsvaldsins að laga það.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árni Freyr Sverrisson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45163
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45163