Back to search

Bifröst University

Ánægður starfsmaður er betri starfsmaður : hvernig stjórnunarstíll hjá stjórnendum hins opinbera hefur áhrif á starfsánægju starfsfólks

Abstract

dc:description.abstract

Á hverju ári stendur Sameyki stéttarfélag fyrir könnuninni Stofnun ársins til að kanna vellíðan og starfsánægju hjá félagsmönnum sínum sem starfa hjá hinu opinbera, ríki, borg og bæ, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum í almannaþjónustu. Þar sem rannsakandinn er að vinna hjá ríkisstofnun, sem hafði í mörg ár lent í efstu sætum í Stofnun ársins en farið hraðbyr niður á við undanfarin misseri, þótti henni spennandi að vita hvaða aðferðir, stjórnendur í efstu sætum hjá hinu opinbera, eru að nota til þess að þeim gangi jafn vel og raun ber vitni. Rannsóknarspurningin sem leitast er við að svara er: „Hvað einkennir stjórnendastíl hjá stjórnendum ríkisstofnana sem tróna í efstu sætum í niðurstöðum könnunarinnar Stofnun ársins 2022“. Ákveðið var að ráðast í eigindlega rannsókn með viðtölum við stjórnendur hjá stofnunum ríkisins sem lentu í efstu sætum könnunarinnar árið 2022. Niðurstöður rannsóknarinnar eru að allir þessir stjórnendur nálgast mannauðinn og starfsmennina sína með trausti, opnum samskiptum og tryggja að þeim líði vel með góðum aðbúnaði þrátt fyrir að peningar séu af skornum skammti hjá þeim. Þær stofnanir sem hafa einhverra hluta vegna farið niður á við eða hafa aldrei litið til sólar í þessari könnun geta tekið sér þetta til fyrirmyndar. Þær geta nýtt sér ráðgjöf sem þeim býðst eftir að niðurstöður eru kynntar og farið virkilega í saumanna á því hvað er hægt að gera betur til að stuðla að mikilli starfsánægju og góðri liðsheild.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Valgeirsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45147
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45147

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Valgeirsdóttir 1973-. Ánægður starfsmaður er betri starfsmaður : hvernig stjórnunarstíll hjá stjórnendum hins opinbera hefur áhrif á starfsánægju starfsfólks. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45147