Bifröst University
Ráðningarumhverfi íslenskra sveitarstjóra í samanburði við æðstu yfirmenn sveitarfélaga : geta sveitarstjórnir ráðið og rekið æðstu yfirmenn og sveitarstjóra eftir geðþótta?
Abstract
dc:description.abstractSveitarfélög eru hluti af framkvæmdarvaldi hins opinbera og ber því í sínum ákvörðunum að fylgja eftir málsmeðferðarreglum stjórnsýslunnar þegar þau taka ákvörðun er varða hag einstaklinga. Þegar sveitarfélög ráða til sín eða segja upp starfsfólki þurfa þau að fylgja eftir þessum málsmeðferðarreglum. Í þessari samantekt eru tekin fyrir störf æðstu stjórnenda sveitarfélaga farið yfir ráðningar og uppsagnarferli þeirra og borið saman við ferlið við ráðningu og uppsögn sveitarstjóra. Við þennan samanburð var horft til þeirra laga og reglna sem gilda um ráðningar og uppsagnir í störfin ásamt því að rýna dóma, álit umboðsmanns Alþingis og ráðuneytis til fyllinga. Í ljós kom að mikill munur er á skyldu sveitarfélaga til þess að fylgja eftir málsmeðferðarreglum við ráðningar í störf æðstu stjórnenda annars vegar og sveitarstjóra hinsvegar. Þar vegur þyngst sú sérstaða sem starf sveitarstjóra hefur umfram önnur störf í sveitarfélögum, sem er að starfið er pólitískt starf. Þessi sérstaða gerir það að verkum að trúnaður, traust og sameiginleg sýn sveitarstjóra gagnvart sveitarstjórn getur verið ásetningarsteinn þess að sveitarstjóri haldi starfinu. Annað gildir hinsvegar um störf annarra stjórnenda sveitarfélaga en þar gilda málsmeðferðarreglur stjórnsýslunnar. Það er því ólíkt flókið að ráða eða reka sviðsstjóra en sveitarstjóra. Svarið við spurningunni hvort það sé hægt að ráða og reka æðstu yfirmenn eftir geðþótta er því nei, en já þegar kemur að sveitarstjórum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingimar Ingimarsson 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45145
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45145