Back to search

Bifröst University

Ímynd Íslands og sjálfsmynd Íslendinga : niðurstöður þjóðfundarins og ímyndaskýrsla forsætisráðuneytisins í ljósi söguskoðunar íslenskrar þjóðernishyggju og tungutaks sjálfstæðisbaráttunnar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður varpað ljósi á hvernig söguskoðun íslenskrar þjóðernishyggju og tungutak sjálfstæðisbaráttunnar hefur haft áhrif á ímynd Íslands og sjálfsmynd Íslendinga. Farið verður í sögulegt yfirlit um þróun íslenskrar þjóðernisstefnu og gagnrýnin nálgun notuð til að skoða hvernig sjálfsmynd Íslendinga hefur þróast allt frá 19. öld. Uppruni þjóðernisstefnu er mikilvægur í þessu tilliti og er farið sérstaklega í kenningar tveggja fræðimanna, Ernest Gellner og Anthony Smith. Skoðað er úr hvaða jarðvegi íslensk þjóðernishyggja sprottin og hver uppruni hennar er. Í því samhengi er litið aftur í söguna og hugmyndir Jóns Sigurðssonar, Jóns Jónssonar Aðils og Jónasar Hallgrímssonar um sjálfsmynd Íslendinga sérstaklega tekin fyrir. Til að sjá hvernig sjálfsmynd og ímynd Íslands hefur þróast er farið í þá sýn sem birtist í ímyndaskýrslu Forsætisráðuneytisins frá 2008 og í gögnum frá þjóðfundinum sem haldinn var í nóvember 2009. Markmið er að að skoða niðurstöður þjóðfundarins og rýnihópa sem settir voru á við gerð ímyndaskýrslu Forsætisráðuneytisins í ljósi söguskoðunar þjóðernishyggju og tungutaks sjálfstæðisbaráttunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4511
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4511

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir 1984-. Ímynd Íslands og sjálfsmynd Íslendinga : niðurstöður þjóðfundarins og ímyndaskýrsla forsætisráðuneytisins í ljósi söguskoðunar íslenskrar þjóðernishyggju og tungutaks sjálfstæðisbaráttunnar. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4511